Hver kannast ekki við að heyra sírenuvæl en sjá engan sjúkra- eða lögreglubíl? Öll athyglinn fer í að leita að bílnum í forgangsakstri. Án árangurs, með tilheyrandi truflun á athyglinni í umferðinni. Þegar loksins þú sérð bílinn með sírenuvælið er hann kominn alveg upp að þér og þá verður lítið svigrúm til að bregðast við í tíma.
Ástæðan fyrir því að við getum ekki staðsett úr hvaða átt sírenuvæl kemur er að bylgjulengd sírenuvæls er jafnbreið mannshöfði. Sem gerir það að verkum að það er útilokað fyrir okkur að staðsetja sírenuvælið. Þegar bylgjulengd hljóðs er jafnbreytt höfðinu, skellur hljóðið á sama tíma á báðum eyru. Þegar hljóð skellur á hægra og vinstra eyra á mismunandi tíma gerir það mannsheilanum kleift að reikna út staðsetningu hljóðs.Væri ekki skynsamlegra að breyta sírenuvæli þannig að við getum staðsett hvaðan vælið kemur til að geta brugðist við í tíma og komið sér tímanlega út í kant?
Forgangsakstur bráðhættulegur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er rétt að hefðbundnar sírenur gætu verið betri. En tíðni hefur ekki mikil áhrif á hljóðhraða.
Það eru tvær meginleiðir sem við notum til að finna úr hvaða átt hljóð kemur.
1. Tímamismunur á milli skynjunar í hvoru eyra. Þetta gildir fyrir tíðni upp undir 4 kHz með svokölluðu "volley principle", þ.e. taugar að púlsa til skiptis í kór.
2. Höfuðið skyggir á hljóð með tíðni yfir 1 kHz. Það má svo enn frekar greina muninn á milli eyrnanna með því að snúa höfðinu og skynja breytinguna.
Fyrir hljóð undir 1 kHz verðum við að stóla eingöngu á fyrri aðferðina. Þar sem sírenur eru yfirleitt undir 1 kHz þá gildir það um þær.
Þórarinn Heiðar Harðarson (IP-tala skráð) 21.11.2012 kl. 10:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.