Færsluflokkur: Bloggar

Þarf ekki að breyta sírenuvæli þannig að getum heyrt úr hvaða átt það kemur?

Hver kannast ekki við að heyra sírenuvæl en sjá engan sjúkra- eða lögreglubíl? Öll athyglinn fer í að leita að bílnum í forgangsakstri. Án árangurs, með tilheyrandi truflun á athyglinni í umferðinni. Þegar loksins þú sérð bílinn með sírenuvælið er hann kominn alveg upp að þér og þá verður lítið svigrúm til að bregðast við í tíma.

Ástæðan fyrir því að við getum ekki staðsett úr hvaða átt sírenuvæl kemur er að bylgjulengd sírenuvæls er jafnbreið mannshöfði. Sem gerir það að verkum að það er útilokað fyrir okkur að staðsetja sírenuvælið. Þegar bylgjulengd hljóðs er jafnbreytt höfðinu, skellur hljóðið á sama tíma á báðum eyru. Þegar hljóð skellur á hægra og vinstra eyra á mismunandi tíma gerir það mannsheilanum kleift að reikna út staðsetningu hljóðs.

 Væri ekki skynsamlegra að breyta sírenuvæli þannig að við getum staðsett hvaðan vælið kemur til að geta brugðist við í tíma og komið sér tímanlega út í kant?


mbl.is Forgangsakstur bráðhættulegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Strætó arðrænir nemendur með tvírukkun fargjalda

Strætó heldur enn áfram að arðræna nemendur þetta haustið með að tvírukka fargjöldin á fyrstu skóladögunum.

Ekki aðeins að nemakortin hafi hækkað frá í fyrra úr 20.000 í 38.500, heldur þurfa nemendur að tvígreiða fargjaldið þar til nemakort er afhent. Kortin fóru ekki í sölu fyrr en eftir að framhaldsskólarnir voru settir. Áætlað er að taki 5 daga að afhenda kortin og 5 dagar í strætó kosta 3 þúsund, sé keypt 10 miða kort. Ef miðað er við 5 daga afhendingu kortanna hefur ferðakostnaður nemenda sem nýta sér strætó því hækkað um 107,5% frá í fyrra.

Ekki er öll sagan sögð því síðastliðið haust lentu margir nemendur í miklum töfum á að fá kortin afhent, það tók t.d. þrjár vikur fyrir barnið mitt að fá sitt nemakort.  Hver vika í farmiðum kostar 3 þúsund. Arðrán Strætó heldur enn áfram bæði með gífulegri hækkun nemakorta og með tvírukkun strætógjalda þar til kortin eru afhent.

Strætó gæti vel sýnt þann sveigjanleika að taka gilda útprentaða greiðslukvittun þar til öll nemakort hafa verið afhent. Tæknin er orðin þannig í dag að hægt er að kaupa bíómiða á netinu og mæta svo í bíó með bókunarnúmer eða útprentaða kvittun. Það er engin afsökun í nútímasamfélagi að finna ekki leið til að leysa þetta á meðan nemendakortin eru í vinnslu. Það er verulega íþyngjandi fyrir nemendur að sitja uppi með að tvígreiða í strætó á haustin.


mbl.is Sífellt seilst lengra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Rósa Steingrímsdóttir
Rósa Steingrímsdóttir

Eldri færslur

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband